|
ESKIMOS rekur fjórhjólafyrirtækið Safarihjól sem er elsta fjórhjólafyrirtæki landsins. Við erum staðsett í Lambhaga, rétt við Úlfarsfell, aðeins 10 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur. Þar erum við með 18 ný tveggja manna CanAm fjórhjól af bestu gerð sem eru á hvítum númerum.
Þar bjóðum við upp á margar og fjölbreyttar fjórhjólaferðir sem henta flestum. Ferðirnar eru allt frá 60 mínútna fjórhjólaferð upp í 3-4 tíma fjórhjólasafaris um fjöll og dali. Öll okkar hjól eru sjálfskipt og afar einföld í notkun. Reynsla af akstri fjórhjóla er því óþörf. Aðeins er gerð krafa um gilt ökuskírteini fyrir ökumann en ekki farþega. Við kennum á hjólin og förum yfir öll öryggisatriði fyrir hverja ferð auk þess sem reyndur leiðsögumaður er ávallt með í för. Síðan er bara að fara eftir reglunum, ýta á bensíngjöfina og muna eftir því að bremsa.
Þú getur einnig skoðað frekari upplýsingar og möguleika á heimasíðu Safarihjóla: Fjórhjólaferðir
|